fbpx

Að fóstra fyrir Villiketti

Fósturheimili Villikatta eru af ýmsum toga.  Hvort sem þú hefur ákveðið að fóstra fullorðna ketti, veika ketti, kettlingafullar læður eða munaðarlausa kettlinga, þá ert þú velkomin/nn/ð í hópinn. Við höfum góða umsjón með fósturheimilunum okkar og veitum alla þá aðstoð sem þarf.  Þú þarft því ekki að vera útlærður kattarsálfræðingur.  Allt sem þarf er mikið af þolinmæði og slatta af ást og umhyggju.  Kisur taka ekki mikið pláss og því þarftu ekki stórt húsnæði.  Við mælum samt með því að kettlingafullar læður séu í sérherbergi.

Það getur verið bæði krefjandi og gefandi að taka kisu í fóstur.  Þeir kettir og kettlingar sem eru í umsjá Villikatta geta verið á ýmsum aldri og í ýmis konar ástandi.  Sumir þeirra koma úr mjög erfiðum aðstæðum og krefjast töluverðrar vinnu og þolinmæði.  Þeir eru mishræddir við manninn og vantar að endurheimta traust og trú.  Þú ákveður sjálf(ur) hvaða tíma þú hefur og hvers konar fóstrun þú treystir þér til.

Fullorðnir kettir – eru yfirleitt kettir sem eru búnir að vera á vergangi eða hafa týnst. Oftast eru þeir ekki örmerktir og því nær ómögulegt að hafa uppi á fyrri eiganda, ef eigandi er ekki í virkri leit sjálfur. Þessir kettir eru oft algjör yndi og kunna illa við sig í athvörfunum okkar. Við þurfum fósturheimili fyrir þessa ketti á meðan við auglýsum þá í von að hafa uppi á eiganda, eða á meðan við finnum ný heimili ef enginn eigandi gefur sig fram.

Villikettir í mönnun – eru kettir sem fæddust eða hafa búið nær allt sitt líf úti en eiga að einhverjum ástæðum ekki afturkvæmt út. Oft eru þetta kisur sem hafa misst yfirráðarsvæðið sitt, eru orðnar gamlar eða eru ekki við fulla heilsu. Þessir kettir þurfa fósturheimili sem eru skilningsrík og þolinmóð. Villikettir í eðli sínu treysta ekki mannfólki en njóta þess að komast inn í hlýjuna og öryggið. Það tekur tíma að vinna inn traust þeirra, en það er þeim mun meira gefandi þegar þú nærð að klappa kisunni í fyrsta skipti, eða þegar hún læðist upp í rúm til að kúra.

Veikir kettir – eru kettir sem finnast illa farnir, þá oft búnir að vera á vergangi lengi. Þessir kettir eru oft hræddir og þurfa að komast í rólegt umhverfi þar sem hægt er að sinna honum betur en við getum gert innan um allar hinar kisurnar sem eru í okkar umsjá. Fósturheimilið gæti þurft að sjá um lyfjagjafir og skutl til dýralæknis eftir þörfum.

Munaðarlausir kettlingar – eru kettlingar sem læðan hefur hafnað eða jafnvel finnast umkomulausir úti á víðavangi. Það fer eftir aldri kettlinganna, hversu mikla vinnu þeir krefjast. Mjög ungir kettlingar þurfa pelagjafir allan sólarhringinn, yngstu á tveggja tíma fresti og svo sjaldnar eftir því sem þeir eldast. Þessi vinna getur verið mjög krefjandi, en hún er líka mjög gefandi. Sú þreyta sem fylgir í byrjun er fljót að gleymast þegar kettlingarnir stækka og þroskast. Ef þú tekur að þér kettling sem er orðinn nokkurra vikna, þá felst vinnan aðallega í því að venja kettlinginn við að umgangast manninn og hlúa vel að honum. Þeim kettlingum geta fylgt lyfjagjafir og dýralæknaheimsóknir.

Kettlingafullar læður eða læður með kettlinga – eru yfirleitt villikattalæður sem eru ekki vanar manninum. Þær eru hræddar og fela sig gjarnan. Þess vegna er nauðsyn að hafa sérherbergi svo þær komist ekki langt. Læðurnar þurfa ró og næði og aðgang að mat/vatni og kattasandi. Eftir að kettlingarnir fæðast þá þarf að “manna þá”. Það þarf að undirbúa þá fyrir sitt framtíðarheimili og venja þá við mannlega snertingu. Læðurnar eru hjá kettlingunum fyrstu vikurnar, en síðan eru kettlingarnir í þinni umsjá þar til þeir fara á heimili.

Það fylgir því mikil ábyrgð að taka að sér kisu í fóstur.  Fósturheimilin þurfa sjálf að sjá um allan þann kostnað sem fylgir venjulegu kattarheimilishaldi.  Villikettir sjá hins vegar um allan dýralæknakostnað.  

Ef það eru önnur gæludýr á heimilinu er þess krafist að þau séu bólusett og geld, þar erum við með hag ykkar gæludýrs í huga. 

Þegar kemur að því að velja framtíðarheimili fyrir kisuna, hefur þitt álit og skoðun töluvert að segja. Þú þekki þína kisu og veist best hvað henni hentar.

Lágmarksaldur er 20 ára